Fræðsla

Efst á baugi

HÁSKÓLALESTIN Í NESI LAUGARDAGINN 27. ÁGÚST

Fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna

27. ágú. 2011

 

27082011_HI-dagurinnHÁSKÓLALESTIN  Á SELTJARNARNESI

Fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna

Fræði og fjörur – gönguferðir um gósenland sögunnar:

• 11.15 og 12.15 Fjaran – gósenland. Leiðsögn: Guðrún Hallgrímsdóttir

• 11.30 og 12.30 Minjar manna um þúsund ár – saga svæðisins sögð. Leiðsögn: Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir

• 11.45 og 12.45 Jurtir sem græða og fæða. Leiðsögn: Elín Soffía Ólafsdóttir

Hver ganga tekur 30–40 mínútur og hentar öllum aldurshópum.

Útileikir og stjörnur, sólir og tungl

• 11.30–14.00 Um víðan völl – útileikir og fjör!  Frábærir útileikir fyrir alla fjölskylduna, nú fá allir að spreyta sig!  Kennarar og nemendur úr tómstundafræði í HÍ láta til sín taka.

• 11.30–14.00 Stjörnur, sólir og tungl! Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness býður gestum og gangandi í ferðir um himingeiminn með þartilgerðum búnaði, skoðar sólir og tungl, stjörnur og himingeiminn.

Saga og heilsa – stutt og stórskemmtileg erindi í Lyfjafræðisafni

• 12.00 Ólöf Ásta Ólafsdóttir: Saga ljósmæðra og fæðingarhjálp fyrr og nú.

• 12.30 Anna Birna Jóhannesdóttir: Flóra Seltjarnarness og lækningamáttur

• 13.00 Kristján Leósson: Myndlistarsýning á títuprjónshaus! Heimur örtækninnar.

• 13.30 Þorsteinn Vilhjálmsson: Eðlisfræði fótboltans.

 

Veitingar í Lyfjafræðisafninu.  Örtækni, geimgrjót og sögulegir tannlæknastólar í nýja Læknaminjasafninu. Opið í Nesstofu, Lyfjafræðisafni og í Gróttu .

 

Dagskrá Háskólalestar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

 

http://www.hi.is/
http://www.haskolalestin.hi.is/


Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica