Fræðsla

Efst á baugi

EKKI SNERTA JÖRÐINA!

Leikjasýning í Grunnskóla Barnaspítala Hringsins

17. okt. 2011

 

Farandsýningin Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna verður opnuð í dag mánudaginn 17. október kl. 11.00 í Grunnskóla Barnaspítala Hringsins.

Sýningin er afrakstur rannsóknar 8 safna á leikjum barna haustið 2009. Starfsmenn safnanna heimsóttu níu grunnskóla víðs vegar um landið og tóku viðtöl við nemendur í  5. bekk um leiki og leikföng. Sum barnanna héldu dagbók í eina viku og afhentu söfnunum til varðveislu. Einnig voru teknar ljósmyndir og stutt myndskeið af börnum í ýmsum leikjum. Grunnskóli Barnaspítala Hringsins tók þátt í rannsókninni í samstarfi við Lækningaminjasafn Íslands.

Sýningin Ekki snerta jörðina! stendur í Barnaspítala Hringsins til 8. nóvember. Börnum og fullorðnum gefst kostur að leika sér að vinsælustu leikföngunum og skoða ljósmyndir og myndskeið af börnum og skólaumhverfinu. Í tengslum við sýninguna verður boðið upp á sérstaka leikjadagskrá fyrir börn. Nánari upplýsingar gefur Jón Páll Björnsson safnkennari í síma 6996192.

Heimasíða með fræðsluefni um leiki og nánari upplýsingar um sýninguna og rannsóknina fylgir sýningunni. Sjá: www.thjodminjasafn.is/ekki-snerta-jordina

Söfnin sem stóðu að rannsókninni voru auk Lækningaminjasafns Íslands í Nesi, Árbæjarsafn, Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka, Byggðasafn Reykjanesbæjar, Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum, Minjasafnið á Akureyri, Þjóðfræðistofa á Hólmavík og Þjóðminjasafn Íslands

 

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica