Fræðsla

Fyrir skóla

Fræðsla fyrir skólahópa

Fjölbreytt viðfangsefni við allra hæfi

Unnið er að því að útbúa fræðsludagskrá fyrir leikskóla og grunnskóla. Áhugasömum er bent á að hafa samband við safnið á netfangið laekningaminjasafn@seltjarnarnes.is eða í síma 595 9100.

Lækningaminjasafnið tekur á móti skólahópum á öllum skólastigum. Heimsóknir skólahópa í safnið eru ókeypis. Þrjú fræðsluverkefni fyrir öll þrjú stig grunnskólans eru í vinnslu og verða fljótlega aðgengileg. Þemu verkefnanna eru ræktun og söfnun plantna og gerð lyfja, leyndarmál Nesstofu og heilsa og hollusta í dag og fyrir 250 árum.

Markmið safnsins með skólafræðslunni

  • Safnið bjóði upp á fræðsluverkefni fyrir öll skólastig
  • Verkefni hafi tengsl við námskrá og styðji við þau kennslumarkmið sem þar eru sett fram

  • Hverju verkefni fylgi kennslugögn sem nýtist kennurum við að undirbúa heimsóknina í tengslum við námsskrá

  • Nemendur vinni saman í hópum að lausn verkefna sem stuðla að samvinnu og samræðu þeirra á milli

  • Verkefnin örvi ályktunarhæfni og sköpunarkrafti nemendanna

  • Nemendur kynnist sögunni á forsendum þess sem þeir þegar þekkja

  • Verkefnin er eingöngu hægt að vinna á safninu enda snúast þau um gripi safnsins, fornleifar í Nesi eða umlykjandi náttúruna
  • Tímaásinn verður nýttur í öllum verkefnum

  • Samstarf við skóla sé ræktað af kostgæfni

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica