Fræðsla

Leiðsagnir

Sagan lifnar við

Viltu vita?

Vissir þú að bæjarhóllinn í Nesi er manngerður? Vissir þú að kirkja heilags Nikulásar stóð í Nesi í 600 ár? Hefurðu heyrt um stóru hringina í Nestúninu sem saman mynda eitt stærsta rústasvæði landsins frá landnámsöld? Viltu ganga á einu elsta timburgólfi landsins og fræðast um framleiðslu lyfja í elstu lyfjagerð landsins? 

Utan opnunartíma safnsins geta hópar fengið leiðsögn um Nesstofu. Leiðsagnirnar taka 30 - 60 mínútur og er umgjörð þeirra og innhald eftir samkomulagi.

Fjögur megin þemu er í boði:

  • Byggingarsaga Nesstofu og endurgerð
  • Urtagarðurinn, ræktun og lyfjagerð í Nesi á árunum 1760–1834
  • Búseta í Nesi og frásagnir fornleifanna
  • Leiðsögn þar sem fjallað er um alla ofangreinda þætti og áætlanir varðandi framtíðaruppbyggingu á safnasvæðinu.

 

Leiðsögn um Nesstofu í hópi vina og kunningja er eftirminnileg skemmtun sem vert er að mæla með.

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica