Aðgengi
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er því miður ekki gott í Nesstofu. Húsið var byggt fyrir 250 árum og eru dyr þröngar og þröskuldar háir. Þó er hægt að komast um á neðri hæðinni á nettum hjólastól. Stiginn upp á efri hæð Nesstofu er brattur og salernisaðstaðan er þröng.
Lækningaminjasafnið leggur áherslu á að Nesstofa verð gerð eins aðgengileg og hægt er, meðal annars með því að gera allar upplýsingar aðgengilegar á rafrænu formi á heimasíðu safnsins. Allar ábendingar gesta um það sem betur má fara eru vel þegnar.
Hönnun og frágangur í nýju safnhúsi sem verið er að reisa í Nesi tekur mið af leiðbeiningum og ráðleggingum sérfræðinga um gott aðgengi fyrir alla. Einnig verða sýningar safnsins byggðar upp með hliðsjón af mismunandi þörfum.
