Safnbúð
í Nesstofu eru til sölu gjafakort, leiðsögubæklingur um Nesstofu og Urtagarð, göngukort um Seltjarnarnes og eitt og annað smálegt.
Gjafakort 12.000.-
Leiðsagnir um Nesstofu eru rómaðar. Gjafakort veita handhafa rétt til leiðsagnar ásamt gestum og eru upplögð gjöf fyrir fróðleiksfúsa vini og ættingja. Kortin má einnig nálgast á skrifstofu safnsins.
Leiðsögubæklingur um Nesstofu 500.-
Í bæklingnum er leiðsögn um Nesstofu. Hægt er að ganga um allt húsið og fræðast um byggingarsögu hússins. Textinn er saminn af Guðrúnu Harðardóttur byggingarsögufræðingi og Þorsteini Gunnarssyni arkitekt. Leiðsögubæklingurinn er afar eigulegur og góð minning um heimsókn í húsið. Leiðsögubæklingurinn er bæði fáanlegur á íslensku og á ensku og hægt er að nálgast eintak á skrifstofu safnsins.
Urtagarður í Nesi. Plöntuvísir 1.000.-
Í Plöntuvísi er að finna stutt ágrip af sögu ræktunar í Nesi og þeim grunni sem Urtagarður byggir á. Einnig er að finna yfirlit yfir allar plöntur garðsins og stutt lýsing á lækningarmætti plantnanna. Einnig nytsamir listar yfir plönturnar á latínu og íslensku. Plöntuvísi má einnig nálgast á skrifstofu safnsins. Öll upphæðin rennur óskipt til þess að efla rannsóknir og miðlun í tengslum við Urtgarðinn.
Göngukort um Seltjarnarnes 100.-
Handhæg kort með helstu gönguleiðum um Seltjarnarnes eru seld í safnbúðinni.
Póstkort 100.-
Kort með myndum af safngripum og yfirlitsmyndir yfir gamla Nesstofusafnið. Einnig eru seld frímerki.
