Fyrir gesti

Söfnin í Nesi

Margt að sjá og skoða

Safnasvæðið í Nesi

NesstofaSafnasvæðið er í útjaðri útivistarsvæðis Seltirninga og afmarkast af bæjarhólnum í Nesi og nánasta nágrenni hans.  Auk Nesstofu og Lyfjafræðisafnsins er Urtagarður staðsettur í Nesi

Í Nesi hefur verið búið allt frá landnámsöld og þar eru ýmsar merkar fornminjar sem gaman er að fræðast um. Nesstofa var reist á árunum 1761 til 1767 sem embættisbústaður fyrsta landlæknisins Bjarna Pálssonar. Húsið er merkileg byggingasöguleg perla og hýsir sýningar Lækningaminjasafnsins.

í Lyfjafræðisafninu má fræðast um sögu lyfjagerðar. Nýjasta viðbótin á safnasvæðinu. Urtagarðurinn í Nesi sem opnaði sumarið 2010, hefur vakið mikla athygli. Þar eru sýndar lækningajurtir sem voru nýttar til lyfjagerðar á tímabilinu 1760 til 1834.

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica