Lyfjafræðisafnið í Nesi
Lítil safnaperla
Lyfjafræðisafnið er sameign allra lyfjafræðinga á Íslandi og er einstakt framtak stórhuga fólks sem vill varðveita muni og heimildir um lyfjafræði til framtíðar. Safnið er hýst í endurgerðu fjósi sem áður tilheyrði bændunum í Nesstofu.
Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur skrifaði skemmtilega um Lyfjafræðisafnið á vefritinu Hugsandi. Greinin ber nafnið „Vekið ekki næturvörðinn að óþörfu“ Þar segir meðal annars:
Í Lyfjafræðisafninu er geymt allt hugsanlegt, sem tengist lyfjum á Íslandi; áhöld, bækur, skjöl, myndir og hvaðeina, sem segir sögu lyfjamála á Íslandi. Í sýningarsölunum eru innréttingar úr gömlum apótekum og auðvelt er að gera sér grein fyrir hvernig vinnuaðstaðan var í apótekunum á þeim tíma þegar nær öll lyf, hverju nafni sem þau nefndust voru framleidd á staðnum. Það voru ekki einungis lyf sem framleidd voru í apótekunum heldur alls kyns efni önnur, m.a. fyrir gull- og silfursmiði, framkallarar fyrir ljósmyndara, hárlakk, alls kyns krydd og kryddblöndur, matarsódi og lyftiduft, fatalitir og bón svo fátt eitt sé nefnt. Sýnishorn af þessari fjölbreyttu framleiðslu apótekanna er til sýnis á safninu. Á einni leirkrúsinni, sem sannarlega er yfir hundrað ára gömul stendur meira að segja „Carry verum“ þ.e. alvöru karrý og það vottar enn fyrir fjarlægum ilmi úr krúsinni.
Lyfjafræðisafnið er opið frá júní til ágúst, á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 13.00 – 17.00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Aðrir opnunartímar eru eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar í síma 5661 7100 eða á netfanginu pharmmus@internet.is
