Fyrir gesti

Nýbyggingin

Að byggja safn

Menningar og þjónustuhús í Nesi

still_ext_nesstofa.2-copyNorðan við Nesstofu er nú að rísa bygging sem mun þegar fram líða stundir hýsa starfsemi Lækningaminjasafns Íslands. Húsnæðinu er einnig ætlað að þjónusta gesti Vestursvæðanna.

Safnbyggingin verður á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir sýningar- og fundarsölum, kaffistofu og safnbúð auk skrifstofurýmis og bókasafns. Kjallarinn hýsir geymslur og tæknirými. Gert er ráð fyrir að safnhúsið verði tekið í notkun í lok árs 2012.

Bygging og rekstur Lækningaminjasafns Íslands er samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands, Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands. Seltjarnarnesbær sér alfarið um og ber ábyrgð á byggingu safnhússins sem mun verða um 1600 fermetrar að stærð.

Verðalaunatillaga Yrki arkitekta.
 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica