Urtagarðurinn í Nesi
Til næringar og heilsubóta
Urtagarðurinn í Nesi er staðsettur á safnasvæði Seltirninga við Nesstofu vestast á Seltjarnarnesi. Garðurinn er safn urta sem ýmist hafa gegnt hlutverki í lækningum eða verið nýttar til næringar og heilsubótar á tímabilinu 1760-1834. Hluti plantnanna tilheyrir íslenskri flóru og hefur lækningamáttur þeirra lengi verið landsmönnum kunnur. Aðrar eru innfluttar en hafa verið ræktaðar í landinu um lengri eða skemmri tíma.
Urtagarðurinn er staðsettur á safnasvæði Seltirninga við Nesstofu vestast á Seltjarnarnesi. Hann er samvinnuverkefni Seltjarnarnesbæjar , Garðyrkjufélags Íslands , Landlæknisembættisins , Læknafélags Íslands , Lyfjafræðingafélags Íslands , Lyfjafræðisafns og Lækningaminjasafns Íslands . Garðurinn verður hann rekinn sem hluti af starfsemi Lækningaminjasafns Íslands og Lyfjafræðisafnsins sem bæði eru staðsett í Nesi. Skipuð hefur verið sérstök stjórn um Urtagarðinn og er stefnt að því að garðurinn verði vettvangur fræðslu um nýtingu urta til lækninga, næringar og heilsubóta fyrr á tímum og í dag.
