Fyrir gesti

Staðsetning

Staðsetning

Nesstofa er staðsett í Nesi við Seltjörn sem er vestast á Seltjarnarnesi í útjaðri byggðarinnar. Þangað er hægt að komst á bíl, með strætó og gangandi eða hjólandi.

Á bíl

Nesstofa stendur fyrir enda Nestraðar sem liggur inn af Nesbala. Fylgið Suðurströnd frá Eiðistorgi. Eftir um það bil 1,4 km akstur er beygt til hægri inn á Nesbala. Eftir u.þ.b. 300 metra er beygt til vinstri inn á Neströð.

Einnig er upplagt að leggja bílnum á Snoppu (bílastæðið við Gróttu – norðanmegin á Seltjarnarnesi) eða við Bakkagranda (bílastæðið við golfvöllinn – sunnan megin á Seltjarnarnesi) og rölta þaðan upp að Nesstofu.

Kort yfir svæðið.

Með strætó

Leið 11  stoppar í tæplega 300 m fjarlægð frá Nesstofu á stoppistöðinni Lindarbraut v/Hofgarða. Þaðan er um 5 mínútna gangur að Nesstofu ef farið er um göngustíg sem er staðsettur beint á móti stoppistöðinni og  liggur á milli Lindarbrautar og Nesbala. Fylgið göngustígnum að Nesbala. Þar er beygt af göngustígnum og gengið eftir Nesbala að Neströð en Nesstofa stendur fyrir enda Nestraðar.

Leið 11 gengur frá Mjódd og út á Seltjarnarnes og fer á leiðinni um Hlemm og Lækjartorg.

Áætlun vagnsins.

Hjólandi og gangandi

Göngustígar liggja meðfram strönd Seltjarnarness og um Nesið liggja skemmtilegar hjóla- og gönguleiðir.
Kort með gönguleiðum um Seltjarnarnes er hægt að kaupa í Nesstofu.

Einnig er hægt að skoða kort með tillögum að ýmsum hjóla- og gönguleiðum í margmiðlunargrunninum  Seltjarnarnes í máli og myndum. Þar og á umhverfissíðu Seltjarnarnesbæjar má einnig fræðast um sögu og náttúru útivistarsvæðisins.

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica