Fyrir gesti

Verð

Nesstofa

Aðgangseyrir

Nesstofa er lokuð yfir vetrartímann en tekið er á móti hópum í Nesstofu utan auglýsts opnunartíma. Einnig er húsið leigt út fyrir minni móttökur.

Aðgangur að safninu 

Á auglýstum opnunartímum er aðgangur að safninu ókeypis.

Leiðsagnir utan opnunartíma safnsins 


Leiðsögn um fornleifasýninguna.Leiðsögn fyrir hópa (lágmark 5 manns) utan auglýsts opnunartíma kostar 1.000 kr. á mann eða 12.000 kr. að hámarki. Ókeypis er fyrir skólahópa. Nánari upplýsingar um leiðsagnirnar eru að finna á heimasíðu safnsins.

 

Nesstofa — hlýleg umgjörð fyrir móttökur

Sex samliggjandi herbergi, öll á neðri hæð hússins, eru leigð út fyrir móttökur. Þetta eru gamla apótekið, lyfjagerðin og lyfjakjallarinn auk móttökuherbergis Bjarna Pálssonar, svefnherbergis Bjarna og Rannveigar Skúladóttur og eldhúss fjölskyldunnar. Öll herbergin eru fremur lítil og skapa hlýlega umgjörð um minni móttökur.

Eldhúsið í NesstofuLeiga á Nesstofu í 2 klukkustundir kosta kr. 22.000.  Innifalið í verði er ræsting og gæsla. Ef þess er óskað er einnig innifalin stutt kynning á sögu hússins.

Nesstofa er friðuð og rýnir takmarkaðan fjölda - á að giska 40 –60 manns. Sex  samliggjandi herbergi, öll á neðri hæð hússins, eru leigð út fyrir móttökur. Þetta eru gamla apótekið, lyfjagerðin og lyfjakjallarinn auk móttökuherbergis Bjarna Pálssonar, svefnherbergis Bjarna og Rannveigar Skúladóttur og eldhúss fjölskyldunnar. Öll herbergin eru fremur lítil og skapa hlýlega umgjörð um minni móttökur.

Aðgengi fyrir fatlaða er sæmilegt á neðri hæð hússins, þó er klósettaðstaðan fremur þröng.

MóttökuherbergiðAthugið að sérstakar reglur gilda um veitingar í Nesstofu. Aðstaða fyrir veitingarnar er lítil og við höfum takmarkanir á því hvað má bera á borð. Ekki má bjóða upp á mat sem getur orsakað bletti (t.d. rauðvín, "lausar" snittur, sósur og súpur.)

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 595 9100 og á netfanginu laekningaminjasafn[hja]seltjarnarnes.is

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica