Bóka- og gagnasafn
Í Bóka- og gagnasafni Lækningaminjasafn Íslands eru varðveittar bækur og skjöl sem varpa ljósi á sögu lækninga. Bóka- og gagnasafn er ætlað að styðja við starfsemi safnsins og endurspegla hlutverk þess sem ábyrgðarsafn á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda.
Í safninu eru varðveittar bækur, skýrslur, smáprent og önnur gögn sem varpar ljósi á sögu lækninga og nýtast í starfsemi safnsins . Gögn og bækur eru ekki ætluð til útláns en aðgangur almennings og fræðimanna skal tryggður, að teknu tilliti til trúnaðarskuldbindinga og öryggismála. Það er gert með skráningu gagna og bóka og með lesaðstöðu í safnhúsi.
Einnig safnar Lækningaminjasafnið bókum og gögnum sem varða sögu Nesstofu og sögu og náttúru Vestursvæðanna.
