Ljósmyndir
Ljósmyndir
Sjón er sögu ríkari
Lækningaminjasafn Íslands safnar og varðveitir ljósmyndir sem tengjast sögu lækninga. Ljósmyndir af stofnunum, lækningatækjum, sjúklingum og starfsfólki við vinnu sína gefa ómetanlega innsýn í sögu lækninga og segja oft meira en þúsund orð og eru mikilvægar heimildir um horfna daga.
Söfnun ljósmynda, innskönnun og skráning í gagnagrunn safnsins er mikilvægur hluti af starfsemi Lækningaminjasafns. Safnið tekur við ljósmyndum til varðveislu, hvort heldur er á filmum, ljósmyndapappír eða á rafrænni afritun.
