Samtímasöfnun
Viðtöl, ljósmyndun og söfnun gripa
Samtímasöfnun er aðferð sem minjasöfn nota við að safna, skrá, rannsaka og sýna á markvissan hátt muni og heimildir um atburði, mannlegar athafnir, atvinnulíf og þjóðfélagsþróun samtímans. Þannig er notkun tækjanna og mikilvægi þeirra skráð með skipulögðum viðtölum og ljósmyndun en lítill hluti tækjanna eða valin táknmynd starfseminnar er tekin til varðveislu á safninu.
Samtímasöfnun kemur því í staðinn fyrir söfnun á úreltum tækjum og tólum og eykur um leið gæði þeirra gagnasafna sem söfnin varðveita og möguleika á að þau nýtist í rannsóknum innan og utan safnanna.
Markmið Lækningaminjasafns Íslands er að auka vægi samtímasöfnunar í starfsemi safnsins. Safnið á gott og einfalt hljóðupptökutæki sem það lánar út til einstaklinga og félagasamtaka sem vilja taka viðtöl sem varpa ljósi á sögu lækninga. Eina krafa safnsins er að það fái til varðveislu í gagnasafni safnsins afrit af upptökunum.
Ýmsar upplýsingar og hagnýtar leiðbeiningar um munnlegar heimildir og viðtalstækni má nálgast á heimasíðu Miðstöð munnlegrar sögu.
