Bygggingarsaga Nesstofu
Nesstofa
Leiðsögn um byggingararfurinn
Nesstofa var byggð á árunum 1761 – 1767 sem embættisbústaður landlæknis. Hún er ein af elstu steinhúsum landsins og í umsjá Lækningaminjasafns. Leiðsögubæklingur um Nesstofu hefur verið gefinn út.
Nesstofa var byggð á árunum 1761 – 1767 sem embættisbústaður landlæknis. Hún er ein af elstu steinhúsum landsins og er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Nesstofa sem er í umsjá Lækningaminjasafns opnaði sumarið 2009 eftir gagngerar endurbætur. Þar gefst gestum kostur á að kynnast byggingarsögu hússins í samhengi við önnur steinhús í landinu og fræðast um endurgerð þess. Athyglinni er einnig beint að viðgerðum á Nesstofu sem fóru fram í tveimur áföngum á vegum Þjóðminjasafns og Húsafriðunarnefndar og undir stjórn Þorsteins Gunnarssonar arkitekts. Lækningaminjasafn og Þjóðminjasafn hafa í sameiningu unnið eiðsögubækling um Nesstofu. Bæklinginn er hægt að kaupa í Nesstofu.
Nesstofa á Seltjarnarnesi (bæklingur á íslensku)
Nesstofa on Seltjarnarnes (bæklingur á ensku)
