Sýningar

Sýningar núna

Nesstofa

Sýningar í Nesstofu 2010

Úr apótekinuÍ Nesstofu má fræðast um búsetu í Nesi sem stóð frá landnámsöld til loka 20. aldar. Þar má ganga á 250 ára gömlum timburgólfum, kynnast 
byggingarsögu Nesstofu og setja sig í spor fyrsta landlæknisins Bjarna Pálssonar.

23. júní n.k. opnar ný sýning í Nesstofu. Þar verður sagt frá lífi og starfi íbúanna í Nesi á meðan læknar, lyfsalar og ljósmæður bjuggu þar. Skúffur apóteksins verða fullar af lyfjaefnum og hægt verður að fræðast um lyfjagerð, lyfsölu og lækningar í samhengi við sögu lítils lands í víðfeðmu ríki Danakonungs.

Á safnasvæðinu dregur Urtagarðurinn til sín fjölda manns allan ársins hring og mælt er með heimsókn í Lyfjafræðisafnið við hlið Nesstofu en þar er sögu lyfjagerðar og lyfsölu gerð góð skil.

 

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica