Hlutverk Lækningaminjasafns er að varðveita og safna lækningaminjum. Jafnframt ber safninu að stuðla að rannsóknum og miðlun á heilbrigðissögu Íslands. Í sögu lækninga rennur saga vísinda og tækni saman við sögu þjóðar og þeirra lífskjara sem hún hefur búið við.