Framkvæmd og forsaga
Bygging safnhúss í Nesi
Í Nesi er að rísa nýtt safnhús Lækningaminjasafns Íslands.Stefnt er að því að húsið verði tilbúið í lok ársins 2013. Bygging safnhússins á sér mun legri aðdraganda og hér er stikklað á stóru í byggingarsögunni.
Bygging og rekstur Lækningaminjasafns Íslands er samstarfsverkefni Seltjarnarnesbæjar, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands, Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags Íslands. Seltjarnarnesbær sér alfarið um og ber ábyrgð á byggingu safnhússins sem mun verða um 1400 fermetrar að stærð og rýma alla starfsemi Lækningaminjasafnsins. Byggingin verður þjónustumiðstöð fyrir gesti Vestursvæðanna og þangað verður hægt að sækja upplýsingar um svæðið og drekka kaffi í stórbrottnu útsýni.
Framundan eru framkvæmdir við að útbúa nýja aðkomu að safnasvæðinu samhliða Sefgörðum, frágangur á safnlóðinni og allur frágangur innanhúss. Framkvæmdirnar hófust árið 2008 en bygging safnhússins á sér mun lengri aðdraganda.
Uppsteypa og ytri frágangur
Í apríl 2009 hófst uppsteypa á húsinu og var framkvæmdin á höndum SÞ verktaka.
Þessum áfanga lauk haustið 2010.
Framkvæmdir hefjast

Framkvæmdum við byggingu Lækningaminjasafns hefur verið skipt í fjóra áfanga.
- Jarðvinna.
- Uppsteypa og ytri frágangur
- Frágangur á lóð
- Frágangur innanhúss
Jarðvinna hófst í september 2008 og lauk í nóvember sama ár. Framkvæmdin var á höndum Loftorku.
Fyrsta skóflustungan
Bæjarstjóri Seltjarnarness, menntamálaráðherra, þjóðminjavörður, formaður Læknafélags Íslands og ritari Læknafélags Reykjavíkur tóku fyrstu skóflustunguna að byggingu Lækningaminjasafns Íslands 5. september 2008
Nýtt deiliskipulag lóðar
Sumarið 2008 voru samþykktar breytingar á deiliskipulagi lóðar safnsins. Markmið með breytingunni var að:
- skilgreina lóð Lækningaminjasafnsins
- breyta og stækka byggingarreit Lækningaminjasafnsins
- auka byggingarmagn Lækningaminjasafnsins ofanjarðar
- heimila byggingu kjallara á einni hæð undir Lækningaminjasafninu
- þá var gerð grein fyrir fyrirkomulagi bílastæða innan skipulagssvæðisins
Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðu Seltjarnarnessbæjar.
Skrifað undir samninginn
27. september 2007 skrifuðu bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, menntamálaráðherra, fjármálastjóri Þjóðminjasafns Íslands fyrir hönd Þjóðminjavarðar og formenn Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur undir samning um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra menningartengda starfsemi.
Kostnaður við bygginguna var áætlaður 393 m.kr. að frátöldum kostnaði við lóð og skiptist milli samstarfsaðilanna. Seltjarnarnes leggur til 110 m.kr. auk lóðar og Læknafélögin leggja til 25 m.kr. hvort. Menntamálaráðuneytið greiðir 75 m.kr. Þá rennur söluandvirði fasteignarinnar Bygggarðar 7 á Seltjarnarnesi í framkvæmdina, en fasteignin var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum í erfðaskrá sinni. Læknafélagið færði síðar Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar.
Verðlaunasamkeppni 1997
Ásdís Helga Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum ehf. hlutu fyrstu verðlaun fyrir hönnun safnhússins í opinni hönnunarsamkeppni sem fór fram árið 1997. Hönnun burðarvirkis, frárennslis-, hreinlætis- og hitalagna er á höndum VSB verkfræðistofu.
Deiliskipulag lóðar og aðkomu samþykkt
23. júní 1996 samþykkti Bæjarstjórn Seltjarnarness nýtt deiliskipulag. Þar var byggingarreitur safnsins staðsettur og jafnframt ákveðið að aðkoma að safninu yrði samhliða Sefgörðum
Erfðafé Jóns Steffensen og Kristínar Björnsdóttur
Jóns Steffensen, prófessors emeritus, arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum í erfðaskrá sinni. Fasteignin Bygggarðar 7 á Seltjarnarnesi var keypt fyrir erfðafé Jóns Steffensen. Þar er safneign Lækningaminjasafns hýst þar til starfsemi safnsins flyst alfarið í Nes. Eiginkona Jóns Steffensen var Kristín Björnsdóttir.
