Um safnið

Starfsemi og hlutverk

Starfsemi og hlutverk Lækningaminjasafns

Lækningaminjasafn Íslands hefur það hlutverk að varðveita og safna lækningaminjum og stuðla að rannsóknum og miðlun á heilbrigðissögu hér á landi. Í sögu lækninga rennur saga vísinda og tækni saman við sögu þjóðar og þeirra lífskjara sem hún hefur búið við.

Munir sem Lækningaminjasafn varveitir varpa ljósi á þessa sögu og í sýningum safnsins verður gerð grein fyrir henni á fjölbreyttan hátt. Jafnframt er eitt af markmiðum þess að varpa ljósi á lækningar og sjúkdóma dagsins í dag.

Lækningaminjasafn er í eigu og umsjá Seltjarnarnesbæjar en auk þess standa að safninu Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur, menntamálaráðuneyti og Þjóðminjasafn Íslands.

Lækningaminjasafn Íslands er ábyrgðarsafn og gegnir hlutverki sínu á landsvísu.

Markmið safnsins

  • Lækningaminjasafn Íslands vinnur að varðveislu, rannsóknum á minjum tengdum heilbrigðissögu, lífskjörum og aðbúnaði íbúa landsins og miðlar þekkingu á sögu og stöðu lækninga í dag.
  • Miðlun Lækningaminjasafns stuðli að aukinni víðsýni, umburðarlyndi og ánægju notenda safnsins.
  • Starfsemi Lækningaminjasafns sé samfélaginu öllu til hagsbóta og stuðli að heilbrigðu líferni og bættri heilsu.
  • Lækningaminjasafn er safn Seltirninga sem og Íslendinga allra.
  • Safnhúsið í Nesi er vettvangur ýmissa menningarviðburða og þjónustumiðstöð fyrir þá fjölmörgu útivistarunnendur sem sækja svæðið heim.
  • Lækningaminjasafn hafi frumkvæði að og leiði faglegt samstarf safna og annarra aðila á starfssviði safnsins.

 

Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica