Stofnun Lækningaminjasafns Íslands
Þann 27. september 2007 var undirritaður samningur milli Seltjarnarnesbæjar, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Íslands og Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra menningartengda starfsemi.
Í framhaldi af samningnum tók fyrsta stjórn safnsins til starfa, skipuð tveimur fulltrúum Seltjarnarness og tveimur fulltrúum Læknafélags Íslands, auk eins fulltrúa Þjóðminjasafns Íslands. Stjórnin hóf þegar undirbúning að byggingu safnhúss á safnasvæði Seltirninga í Nesi eftir verðlaunateikningu Yrki arkitekta frá árinu 1997. Safnstjórinn tók til starfa við safnið í aprílmánuði 2008.
Í raun hefst þó saga safnsins mun tæpum 70 árum fyrr þegar Jón Steffensen hefur söfnun lækningaminja.
