Nesstofusafn 1989 - 2007
Starfsemi lækningaminjasafns í Nesi hefst
Frá árinu 1989 voru skrifstofur og geymslur safnsins starfræktar í útihúsum Nesstofu sem nú hafa verið rifin. Fram að þeim tíma höfðu munirnir verið geymdir víða, meðal annars í Háskóla Íslands, að Vífilsstöðum og í Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi. Lækningaminjasafnið óx jafnt og þétt, sérstaklega eftir að safnið eignaðist eigið geymsluhúsnæði í útihúsum Nesstofu.
Á árunum 1992 til 2000 var sýning Nesstofusafn í vestari hluta Nesstofu. Á sýningum safnsins í Nesstofu gat meðal annars að líta ýmis lækningatæki frá fyrri tíð til dæmis fótstiginn tannlæknabor, augnlækningatæki, gleraugu, fæðingaráhöld, aflimunartæki og fleira. Eitt herbergi var helgað holdsveiki og holdsveikraspítalanum í Laugarnesi.
Árið 2001 voru lækningaminjarnar fluttar úr útihúsum Nesstofu í geymsluhúsnæðið að Bygggörðum og sama ár afhenti Tannlæknafélag Íslands Þjóðminjasafni f.h. Nesstofusafns minjasafn félagsins til eignar, skráningar og geymslu. Þjóðminjasafn Íslands annast varðveislu munanna sem nú hefur verið komið til framtíðarvarðveislu hjá Lækningaminjasafninu í Nesi.
Kristinn Magnússon veitti Nesstofusafni forstöðu á árunum 1991 til 2001 en tvö síðustu árin sá Sigurborg Hilmarsdóttir starfsmaður Þjóðminjasafns um safnfræðslu í Nesstofu. Starfsemi Nesstofusafns lá að mestu niðri á árunum 2003–2007 en enginn starfsmaður var ráðinn til þess að sjá um safnið.
